Fara í meginmál

TRAS - rétt­inda­nám­skeið

5 stjörnur

Á nám­skeið­inu læra þátt­tak­end­ur að skrá á ein­fald­an hátt yf­ir­lit yfir mál­þroska­ferli tveggja til fimm ára gam­alla barna með því að fylla út skrán­ing­ar­lista.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrá á einfaldan hátt yfirlit yfir málþroskaferli tveggja til fimm ára gamalla barna með því að fylla út skráningarlista. Spurningar á skráningarlistanum eru byggðar á niðurstöðum rannsókna um þróun málþroska.

Góður málþroski skiptir miklu máli fyrir almennan þroska. TRAS- efnið var þróað og samið af sérfræðingum í sérkennslu og talmeinafræði í Noregi og er skráningaraðferðin almennt notuð í leikskólum á Norðurlöndunum.

Á námskeiðinu er rætt um mikilvægi þess að leikskólakennarar og annað fagfólk fylgist vel með þróun málþroska og þátttakendur læra að skrá málþroska ungra barna út frá ákveðnum færnisviðum. Einnig er fjallað um helstu frávik í málþroska og ræddar eru hugmyndir um viðeigandi íhlutun og ráðgjöf til foreldra og forráðamanna.

Námskeiðið er ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum, þroskaþjálfum, talmeinafræðingum, sálfræðingum og sérkennurum.

Þetta er réttindanámskeið og aðeins þeir sem hafa sótt þetta námskeið hafa leyfi til að nota TRAS skráningarlistann. Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum.

Gerð er krafa um að þátttakendur á námskeiðinu hafi mjög gott vald á íslenskri tungu.

„Mér fannst nám­skeið­ið mjög skemmti­legt og lær­dóms­ríkt og er sann­færð um að það á eftir að hjálpa mér mjög mikið í starfi mínu sem leik­skóla­kenn­ari; að taka stöð­una á mál­þroska barna og finna við­eig­andi úr­ræði til bóta fyrir hvert og eitt barn."
Staðnám

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

22. september kl. 13:00 – 16:00

13. október kl. 13:00 – 15:30

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

45.900 kr.

Snemmskráning: 13. september. Almennt verð: 55.500 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

TRAS - réttindanámskeið

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.