Skynjun og skynörvun

5 stjörnur
Auktu skilning þinn og þekkingu á mikilvægi skynjunar og skynúrvinnslu til að stuðla að betri líðan og meiri lífsgæðum notenda öldrunarþjónustu.

Fáðu innsýn í virkni skynfæranna og leiðir til að nota skynjun og skynörvun til að stuðla að betri líðan og meiri lífsgæðum íbúa hjúkrunar- og dvalarheimila og dvalargesta í dagdvölum og dagþjálfunum.

Á námskeiðinu er fjallað um ferli skynjunar og skynúrvinnslu. Kynntar eru og prófaðar leiðir sem fela í sér skynörvun - eða dempun, til að bæta líðan og lífsgæði notenda öldrunarþjónustu.

Rætt er um hvaða áskoranir eru til staðar í daglegu starfi í þjónustuumhverfinu, bæði efnislegar og óáþreifanlegar og hvernig er hægt að nota jákvæðar samskiptaleiðir til að draga úr hættu á árekstrum og hegðun sem veldur áhyggjum (behaviour of concern).

Þátttakendur leggja mat á eigin starfsvettvang út frá matsblöðum sem byggja á hugmyndafræði persónumiðaðrar þjónustu.

Námskeiðið er fyrir starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimila og dagdvala/dagþjálfana. Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun eða starfsreynslu en eitthvað verður um fræðilega umfjöllun, þó fyrst og fremst sem bakgrunn að hagnýtri umfjöllun. Aðstandendur aldraðra sem langar að leita nýrra leiða í samskiptum og samveru eru einnig velkomnir.

„Lifandi og skemmtilegt."

Staðnám

28. september 2026

7 klst – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

28. september kl. 8:30–16

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
46.900 kr.

Snemmskráning til og með 18. sept. Almennt verð er 51.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Skynjun og skynörvun

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.