Fara í meginmál

Virð­is­auka­skatt­ur

5 stjörnur

Rétt með­ferð virð­is­auka­skatts er lyk­ill að ör­uggu upp­gjöri og traust­um fjár­mál­um. Fáðu hag­nýta inn­sýn í regl­urn­ar, und­an­þág­urn­ar og áhrif van­skila.

Rekstraraðilar þurfa að skrá sig á virðisaukaskattsskrá þegar umsvif þeirra fara yfir ákveðin mörk. Það þarf að hafa ýmis atriði í huga þegar kemur að uppgjöri á virðisaukaskatti og reglur oft á tíðum flóknari en gera má ráð fyrir við fyrstu sýn. Víða geta því leynst hættur og þess vegna er bæði gott og stundum nauðsynlegt að rifja upp þær reglur sem um þetta gilda.

Á námskeiðinu verður fjallað um virðisaukaskatt, virðisaukaskattsskyldu og hvaða kröfur aðilar þurfa að uppfylla varðandi skil á virðisaukaskatti. Farið verður yfir undanþágur varðandi innheimtu virðisaukaskatts. Einnig verður fjallað um þá sölu sem er undanþegin skattskyldri veltu og virðisaukaskatt við innflutning og útflutning. Fjallað verður um virðisaukaskattshlutföll, uppgjör virðisaukaskatts - sem og áhrif af vanskilum á greiðslu hans o.fl. sem viðkemur virðisaukaskatti.

Námskeiðið er ætlað endurskoðendum, viðurkenndum bókurum, sjálfstætt starfandi bókhaldsfólki, fjármálastjórum og fólki sem vinnur í uppgjöri innan fyrirtækja.

„Góð yf­ir­sýn á gögn­um, efni og glær­um."

Fjarnám

5. nóvember 2026

3 klst. – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

5. nóvember kl. 9:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

32.900 kr.

Snemmskráning: 26. október. Almennt verð: 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Virðisaukaskattur

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.