Árangursríkari starfsmannasamtöl

5 stjörnur
Á námskeiðinu er farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala og fjallað um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt.

Námskeið í boði á haustmisseri 2026:Fjarnámskeið, 20. október kl. 8:30 - 12:00Staðnámskeið, 17. nóvember kl. 8:30 - 12:00

----------

Vilt þú nýta betur það verkfæri sem starfsmannasamtöl eru við stjórnun mannauðsmála? Á tímum stöðugra breytinga og áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn. Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.

Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni. Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.

„Frábær kennari sem gerði efninu skil á lifandi og skemmtilegan hátt. Praktískt efni, hópavinna og æfingar."

Staðnám

3,5 klst – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

17. nóvember kl. 8:30–12

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
37.400 kr.

Snemmskráning til og með 8. nóvember. Almennt verð er 41.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Árangursríkari starfsmannasamtöl

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.