Fara í meginmál

Há­mörk­um ár­ang­ur með gervi­greind - grein­ing og ákvarð­an­ir

5 stjörnur

Markmið nám­skeiðs­ins er að efla hæfni þátt­tak­enda í að beita gervi­greind við grein­ingu og ákvarð­ana­töku gagn­vart flókn­um við­fangs­efn­um.

Á þessu námskeiði nýtum við krafta gervigreindarlíkana til að efla okkar eigin hugsun og ákvarðanatöku á markvissan hátt. Nálgunin byggir á því að þátttakendur þrói eigin röklega greiningu til að taka betri ákvarðanir; gervigreindin er notuð til að kanna valkosti, prófa rökfærslur og skýra forsendur, þannig að þátttakendur ná betri tökum á greiningunni sjálfir.Þátttakendur öðlast færni í að nýta gervigreind til stuðnings við greiningu orsaka og afleiðinga gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni sína í starfi og framtíðarmöguleika. Færni í að eiga samskipti við gervigreindarlíkön (LLM) verður sífellt mikilvægari, enda eru líkönin notuð í sívaxandi mæli til að auðvelda vinnu og auka afköst. Séu líkönin notuð með kerfisbundnum og markvissum hætti geta þau hjálpað okkur að efla eigin hæfni til að greina aðstæður og taka betri ákvarðanir.Ákvarðanataka og greining á flóknum viðfangsefnum krefst ítarlegrar greiningar orsaka og afleiðinga. Fram að þessu hefur áskorunin oft verið sá tími og sú fyrirhöfn sem vönduð greining krefst. Við hneigjumst því gjarnan til þess að stytta okkur leið, sem getur leitt til illa ígrundaðra ákvarðana. Með markvissri notkun gervigreindar innan ramma formlegrar aðferðafræði er hægt að flýta verulega fyrir vandaðri greiningu á flóknum viðfangsefnum, ásamt því að afhjúpa ómeðvitaðar forsendur sem við nánari skoðun kunna að reynast rangar eða ófullnægjandi. Um leið verður auðveldara að prófa rök fyrir og á móti, meta líklegar afleiðingar og skýra hvað þarf að liggja fyrir til að niðurstöður standist.Í námskeiðinu er útskýrt, skref fyrir skref, hvernig nota má gervigreindarlíkön til að hraða og bæta greiningu orsaka og afleiðinga. Notast er við markvissa aðferðafræði við greiningu vandamála og mótun úrlausna, Röklegt umbótaferli (Logical Thinking Process), sem grundvallast á kenningum og aðferðum stjórnunarfrömuðarins Dr. Eliyahu M. Goldratt. Þátttakendur læra um leið grundvallaratriði aðferðafræðinnar og hvernig nýta má gervigreind til að styðja við hvert skref: að gera forsendur skýrar, byggja röklega orsakakeðju, finna veikleika og ósamræmi og móta næstu skref á traustum grunni.Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda í að beita gervigreind með ábyrgum og gagnrýnum hætti við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni þeirra í starfi og framtíðarmöguleika.Námskeiðið er afar gagnlegt fyrir stjórnendur, sérfræðinga og annað fagfólk sem þarf að taka ákvarðanir um flókin viðfangsefni og vill nýta gervigreind til að efla eigin hæfni við greiningu og ákvarðanatöku.

„Yf­ir­burða sér­þekk­ing kenn­ara á efn­inu, skipu­leg vinnu­brögð, góð fram­setn­ing, áhuga­verð og fag­leg fram­setn­ing, sem og upp­bygg­ing nám­skeiðs­ins. Dæmi­sög­urn­ar voru einkar áhuga­verð­ar, hag­nýt­ar og vel setta fram. Kenn­ari kveikti neista hjá nem­end­um til frek­ari glöggv­un­ar á mála­flokkn­um."
Staðnám

8. október – 9. október 2026

8 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

8. október kl. 8:30 – 12:30

9. október kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

68.900 kr.

Snemmskráning: 29. september. Almennt verð: 75.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.