Fara í meginmál

Evr­ópu­lög­gjöf um gervi­greind

Vertu klár þegar reglu­verk­ið tekur gildi.

Gervigreind er að umbreyta vinnustöðum, þjónustu og ákvarðanatöku — og brátt mun nýtt regluverk skilgreina hvernig hún má og á að vera notuð. Bráðlega ber Íslandi að innleiða reglugerð Evrópusambandsins um gervigreind (EU AI Act). Mun hún hafa bein áhrif á fyrirtæki, stofnanir og opinbera aðila sem þróa, kaupa eða nýta gervigreind.

Mikilvægt er að skilja þau rök sem búa að baki reglum um gervigreind, kosti þeirra og galla, og áskoranir við reglusetningu. Sá skilningur auðveldar túlkun og beitingu regluverksins og aðstoðar við regluhlítni.

Til að setja evrópska regluverkið í samhengi og dýpka skilning verður einnig litið til þróunar og löggjafar í öðrum heimshlutum.

Á námskeiðinu verður fjallað um regluverk Evrópusambandsins og áhættuflokka sem og hvaða áhrif innleiðingin hefur á íslensk fyrirtæki og stofnanir.

Vertu klár þegar regluverkið tekur gildi.

Námskeiðið er ætlað öllum sem vinna með gervigreind, m.a. þau sem starfa í opinberri stjórnsýslu, við stefnumótun, innleiðingu, innkaup, lögfræði, stjórnun, upplýsingatækni eða þróun. Engar forkröfur eru gerðar.

Námskeiðið er byggt á eldra námskeiði sem hét Gervigreind - regluverk og stefnumótun, en hefur hér verið endurskipulagt og fjallr nú eingöngu um lög og reglur varðandi gervigreind.

Staðnám

26. janúar – 28. janúar 2027

6 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

26. janúar kl. 13:00 – 16:00

28. janúar kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

58.900 kr.

Snemmskráning: 17. janúar. Almennt verð: 74.700 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Evrópulöggjöf um gervigreind

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.