Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

5 stjörnur
Á námskeiðinu verður fjallað um félagslega og sálræna þætti, sem og vinnuaðstöðu og eins hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.

Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?

Á þessu námskeiði skoðum við líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar. Rætt er um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Mikilvægi hæfni einstaklinga og hvernig henni er viðhaldið. Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga í góðu og öruggu vinnuumhverfi.

Námskeiðið er ætlað öllum sem eru hluti af vinnustöðum landsins, sérstaklega áhugavert fyrir vinnustaði þar sem nú þegar er verið að vinna samkvæmt hugmyndafræði gæðastjórnunar og / eða standa fyrir vinnuverndarstarfi. Nytsamlegt fyrir gæðastjóra, öryggisstjóra, mannauðsstjóra og stjórnendur sem eru að hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu.

„Skemmtilegar og áhugaverðar umræður með persónulegri nálgun."

Staðnám

12. nóvember 2026

3 klst – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

12. nóvember kl. 9–12

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
32.900 kr.

Snemmskráning til og með 1. nóvember. Almennt verð er 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.