Fara í meginmál

Grein­ing árs­reikn­inga

5 stjörnur

Hvað segja árs­reikn­ing­ar fé­lag­anna okkur um reikn­ings­skil fé­laga? Eins má spyrja: hvað segja þeir okkur ekki? Svar­ið má finna á þessu nám­skeiði!

Viðskiptalífið á mikið undir því að reikningsskil félaga séu trúverðug og endurspegli þann veruleika sem þau starfa í. Hvað segja ársreikningar félaganna okkur? Eins má spyrja: hvað segja þeir okkur ekki?

Námskeiðinu er ætlað að taka á báðum þessum sjónarhornum og leitast við að ljá þátttakendum notadrjúg verkfæri til að ljúka upp leyndardómum reikningsskilanna.

Fjallað er um helstu aðferðir við greiningu ársreikninga og hvaða ólíkum tilgangi þær þjóna. Urmull kennitalna verður skoðaður og bent á notagildi þeirra og jafnframt takmarkanir. Dæmi verða tekin úr ársreikningum íslenskra félaga. Mikið er lagt upp úr að þátttakendur treysti kennitölum ekki í blindni, heldur geri sér grein fyrir því hvað þær mæla og hvað getur skekkt boðskap þeirra.

Reiknað er með að þátttakendur séu læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Lestur ársreikninga.

„Við­fangs­efni vel fram sett og skýrt."

Staðnám

8. mars – 12. mars 2027

9 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

8. mars kl. 9:00 – 12:00

10. mars kl. 9:00 – 12:00

12. mars kl. 9:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

77.900 kr.

Snemmskráning: 25. febrúar. Almennt verð: 85.700 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Greining ársreikninga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.