Fara í meginmál

CE-merk­ing­ar véla

Nám­skeið­ið er hald­ið í sam­starfi við Staðla­ráð Ís­lands og veit­ir hag­nýta inn­sýn í kröf­ur um CE-merk­ing­ar véla sam­kvæmt regl­um Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins.

Óheimilt er að markaðssetja vörur án CE-merkis á Evrópska efnahagssvæðinu, heyri þær undir nýaðferðartilskipanir Evrópusambandsins. Því er brýnt fyrir framleiðendur og innflytjendur véla að gæta að því hvort vörur þeirra heyri undir reglugerðir og tilskipanirnar og uppfylli kröfur þeirra. Framleiðendur og innflytjendur bera sjálfir ábyrgð á að vörur þeirra séu CE-merktar. Eftir að varan hefur verið CE-merkt má markaðssetja hana án hindrana í öllum löndum EFTA og ESB.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu kröfur um CE-merkingar véla og ábyrgð framleiðenda og innflytjenda samkvæmt reglum Evrópska efnahagssvæðisins. Fjallað er um vélatilskipun og nýja reglugerð um vélar, samræmismat, áhættumat, tæknigögn og notkun staðla.

Námskeiðið hentar framleiðendum, hönnuðum, verkfræðingum, innflytjendum og öðrum sem koma að hönnun, framleiðslu eða markaðssetningu véla.

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur betri skilning á CE-merkingum, geta metið hvort vörur falli undir viðeigandi reglur og þekkja helstu skref við að tryggja samræmi við kröfur tilskipana og staðla.

Staðnám

14. október – 15. október 2026

7,5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

14. október kl. 13:00 – 16:30

15. október kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

69.500 kr.

Snemmskráning: 4. október. Almennt verð: 76.500 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

CE-merkingar véla

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.