Sjóð­streymi - van­metni kafl­inn í árs­reikn­ingn­um

5 stjörnur
Nám­skeið­ið fjall­ar um yngsta og oft van­met­inn kafla árs­reikn­ings­ins, sjóð­streymi, sem skýr­ir frá breyt­ing­um á hand­bæru fé fé­lags­ins.

Námskeiðið fjallar um yngsta og oft vanmetinn kafla ársreikningsins, sjóðstreymi. Sjóðstreymið skýrir frá breytingum á handbæru fé félagsins á meðan rekstrarreikningurinn greinir afkomuna á reikningstímabilinu.

Ótal rannsóknir hafa leitt í ljós að sjóðstreymi getur fyrr gefið vísbendingar um erfiðleika í rekstri félags heldur en rekstrarreikningurinn gerir.

Meðan rekstrarreikningurinn gerir grein fyrir tekjum og gjöldum á reikningstímabilinu þá gerir sjóðstreymið grein fyrir innborgunum og útborgunum á sama tímabili. Þannig er það strangari prófsteinn á árangur af starfsemi félagsins. Stjórnendur hafa minna svigrúm til framsetningar á matskenndum stærðum í starfseminni. Lykilstærð sem fæst úr sjóðstreyminu er handbært fé frá rekstri. Forvitnilegt er að bera þessa stærð saman við niðurstöðutölu rekstrarreikningsins, sem kallast hagnaður (tap). Til lengri tíma litið eiga þessar stærðir að haldast í hendur. Oft er samt misbrestur á því.

Ætlað þeim sem eru þokkalega læsir á ársreikninga, en ekki vel að sér í gerð og uppbyggingu sjóðstreymis. Hentar ekki þeim sem hafa ekki innsýn í reikningsskil og eðli bókhalds.

„Var mjög ánægð. Kenn­ari mjög víð­sýnn og með hlut­ina á hreinu."

Fjarnám

12. nóvember 2026

4 klst – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

12. nóvember kl. 8:30–12:30

Kenn­ari
Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
40.900 kr.

Snemmskráning til og með 2. nóvember. Almennt verð er 45.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Sjóðstreymi - vanmetni kaflinn í ársreikningnum

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.