Fara í meginmál

Hag­nýt rétt­ar­lækn­is­fræði fyrir fag­fólk

5 stjörnur

Pétur Guð­mann Guð­manns­son, rétt­ar­lækn­ir, kenn­ir nám­skeið um hag­nýt at­riði rétt­ar­lækn­is­fræði, svo sem túlk­un áverka, lífs­hættu, mat á dánar­or­sök og líkskoð­un.

Á þessu námskeiði verða kynnt viðfangsefni réttarlæknisfræði. Dregin verður upp mynd af rannsókn dauðsfalla og réttarlæknisfræðilegu mati á lifandi einstaklingum. Áhersla verður á hagnýt atriði, svo sem túlkun áverka, lífshættu, mat á dánarorsök, líkskoðun og vandamál við greiningar en einnig verður farið í fræðileg atriði til að undirbyggja ofannefnt.

Hugtök áverkafræðinnar verða kynnt og valin áverkaferli skoðuð náið með tilliti til kraftgerða. Þá verður fjallað um það hvað og hvernig lesið er í áverka og hvaða sögu áverkinn segir um atburðinn sem rannsakaður er. Þá er rætt um fyrirbærin: lífshættulegur áverki, lífshættulegt ástand og lífshættulegur gjörningur.

Rætt verður um stöðu læknisins sem hefur með réttarlæknisfræðilegt verkefni að gera, hversu viss er niðurstaðan og hver nýtur vafans? Kynnt verða helstu atriði við rannsókn á dauðsföllum, skilgreiningu dauða og breytingar á líkamanum eftir dauðann. Fjallað verður um ritun dánarvottorðs og vissu við mat á dánarorsök.

Krufningin verður útskýrð; styrkleikar hennar og veikleikar. Fjallað verður um skyndidauða, sjúkdóm og ónáttúruleg dánaratvik. Fjallað verður um kraftbeitingu gegn hálsi og kyrkingu. Réttarlæknisfræðileg líkskoðun og vettvangsvinna verða skoðuð undir hagnýtu sjónarhorni.

Námskeiðið er ætlað fagfólki innan heilbrigðisgeirans og réttarkerfisins í störfum sem tengjast rannsókn og réttarmeðferð brotamála þar sem læknisfræðileg álit koma til greina, t.d. læknum, lögmönnum, lögreglumönnum og ákærendum.

Þess skal getið að kennari sýnir myndir til stuðnings máli sínu. Sumar hverjar þessara mynda sýna áverka á fólki og/eða látið fólk. Myndirnar geta vakið óhug.

„Fag­leg og skýr fram­setn­ing Pét­urs Guð­manns."

Staðnám

11. mars – 12. mars 2027

12 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

11. mars kl. 12:00 – 17:00

12. mars kl. 8:30 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

75.900 kr.

Snemmskráning: 1. mars. Almennt verð: 87.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Hagnýt réttarlæknisfræði fyrir fagfólk

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.