StaðnámStígðu fram - sigraðu ræðukvíðann
11. nóvember – 18. nóvember 2026
6 klst. – 2 skipti
43.800 kr.
Kreatín, próteinduft og próteinríkar vörur eru víða markaðssettar sem lykill að betri heilsu og árangri, en hver þarf raunverulega á þeim að halda?

Á þessu námskeiði verður farið yfir hvað vísindin segja, hvaða fullyrðingar standast skoðun og hvenær vel samsett mataræði dugar fullkomlega.
Áhugi á kreatíni, próteini og öðrum fæðubótarefnum hefur aukist mikið á síðustu árum. Á sama tíma flæða upplýsingar um áhrif þeirra um samfélagsmiðla, auglýsingar og netmiðla, sem getur gert erfitt að greina á milli vísindalegra staðreynda og markaðssetningar.
Á námskeiðinu verður fjallað um próteinþörf við mismunandi aðstæður og hvernig aldur, hreyfing og styrktarþjálfun hafa áhrif á hana. Skoðað verður hvort og hvenær þörf sé á próteindufti eða öðrum próteinríkum vörum og hvernig hægt er að uppfylla próteinþörf með venjulegu mataræði.
Einnig verður farið yfir rannsóknir á kreatíni, meðal annars áhrif þess á líkamlega frammistöðu, vöðvastyrk og aðra þætti sem hafa verið rannsakaðir. Fjallað verður um hvað rannsóknir sýna með nokkurri vissu og hvar enn skortir traustar niðurstöður. Sérstök áhersla verður lögð á að greina á milli vísindalegra niðurstaðna, viðurkenndra heilsufullyrðinga og fullyrðinga sem oft birtast í markaðsefni og á samfélagsmiðlum.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu sem gerir þeim betur kleift að taka upplýstar ákvarðanir um notkun kreatíns, próteins og próteinvara og að miðla traustum upplýsingum til annarra.
Námskeiðið hentar heilbrigðisstarfsfólki, þjálfurum, íþróttakennurum og öðrum sem starfa við heilsueflingu, hreyfingu eða ráðgjöf um mataræði. Einnig hentar það áhugasömum almenningi sem vill öðlast betri þekkingu á hvenær bætiefni geta verið gagnleg og hvenær vel samsett mataræði er nægjanlegt.
26. janúar 2027
2,5 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
26. janúar kl. 19:30 – 22:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám11. nóvember – 18. nóvember 2026
6 klst. – 2 skipti
43.800 kr.
Staðnám11. nóvember 2026
2,5 klst. – 1 skipti
21.900 kr.
Fjarnám12. nóvember 2026
1,5 klst. – 1 skipti
13.100 kr.
Fjarnám12. nóvember – 3. desember 2026
5 klst. – 2 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
55.500 kr.
Staðnám13. nóvember – 14. nóvember 2026
16 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
99.900 kr.
Staðnám16. nóvember – 17. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
26.900 kr.
Fjarnám16. nóvember 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
22.900 kr.
Fjarnám17. nóvember 2026
4 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
32.900 kr.
1 laust pláss
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.