StaðnámForeldraviðtalið - skýrleiki og traust
13. ágúst 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð

Mikilvægasta grunnþörf barns er að tengjast tilfinningaböndum við foreldra/umönnunaraðila. Í gegnum grunntengslin fær barnið þörfum sínum fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt, án skilyrða. Tengslaröskun, tengslavandi og einkenni tengslavanda verður til eða þróast í gegnum misalvarlega vanrækslu á þessum grunnþörfum. Vandinn getur þróast og haft áhrif á allt nærumhverfi barnsins. Þekking og skilningur á fjöláfalla-og tengslavanda barnsins er grunnforsenda þess að hægt sé að ná til barnsins í því skyni að hafa jákvæð áhrif á líf þess.Á námskeiðinu er fjallað um mikilvægi frumbernskunnar og forsendur barns sem glímir við vanda tengdan fjöláföllum og tengslum. Skoðað er hvernig hægt er að nálgast barnið af öryggi, út frá þekkingu, með kærleik og viðeigandi mörkum að leiðarljósi með það að markmiði að draga úr þeim einkennum sem barnið sýnir sem byggja á öryggisleysi og ótta.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um ákveðna tengslaeflandi hugmyndafræði og líkanið „Attachment and Resilience Based Model“ (Tengslamyndun, tilfinningastjórnun, færniþættir) sem auðveldar lykilaðilum barnsins að skyggnast á bak við tilfinningalegan óstöðugleika og erfiða hegðun barna upp að 16 ára aldri. Skoðað verður hvernig hægt er að setja hegðun barnsins í merkingarbært samhengi og bregðast við af öryggi, yfirvegun, rósemd og viðeigandi festu.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur eigi auðveldar með að „skyggnast á bak við‟ hér og nú hegðun barnsins:
Námskeiðið er ætlað öllu fagfólki sem starfar við leik- og grunnskóla, frístundaheimili, félagsþjónustu, barnavernd og heilsugæslu.
1. október 2026
4 klst – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
1. október kl. 8:30–12
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám13. ágúst 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Stað- og fjarnám18. ágúst 2026
5 klst – 2 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám16. september 2026
1,5 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám16. september – 21. september 2026
9 klst – 3 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám24. september 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám1. október 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám26. október – 27. október 2026
9 klst – 2 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám3. nóvember 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.