Mannauðsmál frá A til Ö

5 stjörnur
Vandað og ítarlegt námskeið þar sem fjallað er um mannauðsmál af öllu tagi, allt frá ráðningu til starfsloka.

Á námskeiðinu er fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.

Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og færni stjórnenda með mannaforráð, m.a. til að leiða einstaklinga og teymi á hvetjandi og uppbyggilegan hátt til aukins árangurs. Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að nýta sér hagnýtar aðferðir mannauðsstjórnunar í starfi sem stjórnendur og stuðla að eigin starfsþróun í síbreytilegu starfsumhverfi.

Námskeiðið er einkum sniðið að stjórnendum sem ekki hafa sérstaka menntun í mannauðsstjórnun og stjórnendum smærri fyrirtækja sem ekki eru með sérstaka mannauðsdeild, en einnig öllum nýjum stjórnendum og millistjórnendum sem vilja efla hæfni sína í mannauðsstjórnun. Efnið nýtist í raun öllum sem vilja tileinka sér fagleg vinnubrögð innan skipulagsheilda og stuðla að heilbrigðu og öflugu starfsumhverfi.

„Tek mikið út úr þessu frábæra námskeiði sem ég mæli eindregið með. Kennarar og gestafyrirlesarar framúrskarandi góðir og virkilega gott að fá þessa tengingu við atvinnulífið."

Staðnám

9. september – 2. desember 2026

42 klst – 7 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

9. september kl. 9–15:30

23. september kl. 9–15:30

7. október kl. 9–15:30

28. október kl. 9–15:30

11. nóvember kl. 9–15:30

25. nóvember kl. 9–15:30

2. desember kl. 9–15:30

Kennarar
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
390.000 kr.
Skrá mig

Ég hef áhuga

Mannauðsmál frá A til Ö

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.