Fara í meginmál

Húmor og harm­ur - Áföll, sorg og bjargráð

5 stjörnur

Hvernig getur mann­eskj­an notað húmor sem varn­ar­hátt gegn áföll­um og harmi? Á þessu vin­sæla nám­skeiði kafar Edda Björg­vins­dótt­ir ofan í efnið á ein­stak­an hátt.

Áföll og sorg er eitthvað sem allar manneskjur upplifa á lífsleiðinni en bjargráðin eru sem betur fer ótal mörg og þeir einstaklingar sem nýta sér þær leiðir sem til eru ná gjarnan fyrri lífsgæðum og lífsorku eftir erfiða lífsreynslu.

Bjargráð eftir áföll eru mjög margvísleg og húmor getur verið afar öflugt verkfæri í bataferli (eða endurreisn) eftir að áfall/áföll hafa átt sér stað. Bjargráð eru nokkurs konar varnarkerfi líkamans og kannast margir við einkenni eins og doða, afneitun, sjálfsásökun og alls konar geðsveiflur.

Sigmund Freud sagði: „Varnarhættir eru aðferðir sem heilbrigður hugi beitir til að kaffærast ekki í sársaukafullum eða ógnandi upplifunum“.

Á þessu námskeiði verður farið í þá varnarhætti sem talið er að gagnist manneskjunni og sérstaklega verður hugað að fyrirbærinu húmor, sem hefur reynst afbragðsbjargráð margra. Harmur að viðbættum tíma getur orðið húmor þó svo að áföll og sorg séu í sjálfu sér aldrei fyndin eða veki hlátur.

Námskeiðið er fyrir öll þau sem vilja auka þekkingu sína á því hvernig manneskjan bregst við áföllum og sorg og einnig þau sem vilja veita öðrum styrk.

„Dá­sam­leg­ur frá­sagn­ar­hæfi­leiki Eddu og hvernig hún bland­ar reynslu við fræði."

Staðnám

23. febrúar 2027

3 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

23. febrúar kl. 16:00 – 19:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

21.900 kr.

Snemmskráning: 14. febrúar. Almennt verð: 24.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Húmor og harmur - Áföll, sorg og bjargráð

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.