Fyrstu skref námsefnisgerðar

5 stjörnur
Langar þig að gefa út eigið námsefni en veist ekki hvar skal byrja? Á þessu námskeiði öðlast þú margvísleg verkfæri til að hefjast handa.

Langar þig að gefa út eigið námsefni en veist ekki hvar skal byrja? Mikil vöntun er á námsefni fyrir öll skólastig og aukin eftirspurn eftir faglegu og aðgengilegu efni á netinu. Á námskeiðinu kynnist þú fyrstu skrefum námsefnisgerðar og öðlast margvísleg verkfæri til að hefjast handa.

Hvort sem námsefni er rafrænt eða búið til fyrir prent er í mörg horn að líta. Við skoðum markmið, umfang, aðgengi, hönnun, framsetningu og finnum fjölbreyttar leiðir til að gera útgáfuna að veruleika. Við leikum okkur með liti, form, leturgerðir, skoðum samspil texta og mynda, og finnum fjölbreyttar leiðir til að mæta þörfum ólíkra nemendahópa. Þátttakendur eru hvattir til að vinna að eigin hugmyndum meðan á námskeiðinu stendur með það að markmiði að gefa út fullunna afurð.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem langar að stíga fyrstu skrefin í útgáfu á eigin námsefni ætlað leik-, grunn- og framhaldsskólum, eða setja saman fjölbreytta fræðslupakka fyrir aðra markhópa. Ekki eru gerðar neinar forkröfur um menntun eða starfsreynslu.

„Fullt af góðum ráðum og verkfæri í bakpokann."

Staðnám

16. september – 21. september 2026

9 klst – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

16. september kl. 13–16

18. september kl. 13–16

21. september kl. 13–16

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
64.900 kr.

Snemmskráning: 7. september. Almennt verð: 71.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Fyrstu skref námsefnisgerðar

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.