StaðnámForeldraviðtalið - skýrleiki og traust
13. ágúst 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta færni og þekkingu á ofbeldisforvörnum. Þátttakendur læra að nýta sér áhorfendanálgun (e. bystander approach) á forvarnir gegn ofbeldi hvort sem er í skólastarfi, æskulýðsstarfi eða öðru hópastarfi.
Fjallað verður um rannsóknir á ofbeldisforvörnum, ofbeldi, ofbeldisfullri orðræðu og mikilvægi þess að breyta menningu til að fyrirbyggja ofbeldi. Námskeiðið miðar að því að miðla hagnýtri þekkingu og kunnáttu. Kynntar verða einfaldar nálganir, verkefni og umræðukveikjur til að auka sjálfstraust og getu til að bregðast við í erfiðum aðstæðum og ofbeldi á öruggan hátt. Þátttakendur læra bæði að nýta sér nálgunina í eigin viðbrögðum og að leiða barna- og ungmennahópa í gegnum efnið.
Í skólum landsins fara daglega fram forvarnir gegn ofbeldi m.a. í formi samskiptakennslu, væntumþykju og utanumhalds. Börnum og unglingum sem líður vel, eru í öruggu umhverfi og eru fær í samskiptum eru ólíklegri til að beita ofbeldi. Sértækari ofbeldisforvarna er þó einnig þörf. Fagfólk í starfi með börnum hefur undanfarið bent á aukið ofbeldi barna og unglinga sem og ákveðið úrræðaleysi til að takast á við vandann.
Áhorfendanálgun (e. bystander approach) er einföld og áhrifarík leið til að minnka það rými sem ofbeldi hefur innan lítilla samfélaga, s.s. skóla, vinnustaða eða hópa. Nálgunin gengur út á að auka getu og þor þeirra sem verða vitni að óviðeigandi hegðun, til að bregðast við á öruggan hátt. Erlendis eru í notkun ýmis módel sem byggja á þessari nálgun, m.a. MVP -Mentors in Violence Prevention, Bring in the Bystander o.fl. og hafa þær sýnt góðan árangur. Rannsóknir hafa sýnt að námsaðferðin getur gefið:
Námskeiðið er ætlað öllu fagfólki sem starfar með börnum.
18. ágúst 2026
5 klst – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
18. ágúst kl. 9–13
18. ágúst kl. 9–10
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám13. ágúst 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám16. september 2026
1,5 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám16. september – 21. september 2026
9 klst – 3 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám24. september 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám1. október 2026
4 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Fjarnám1. október 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám26. október – 27. október 2026
9 klst – 2 skipti
Snemmskráningarverð
Staðnám3. nóvember 2026
3 klst – 1 skipti
Snemmskráningarverð
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.