StaðnámStjórnun fyrir nýja stjórnendur
5. október – 6. október 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Viltu fá tæki og tól í hendurnar og aukið sjálfstraust til að taka samtalið í vinnunni og ræða málin?

Viltu fá tæki og tól í hendurnar og aukið sjálfstraust til að taka samtalið í vinnunni og ræða málin? Hvernig ræðum við það sem betur má fara, hvort sem það er frammistaða, samskipti eða fagmennska? Á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið færni okkar í að eiga gagnleg samtöl.
Fáa langar til að taka óþægilega samtalið og margir veigra sér við því. En aðgerðaleysinu fylgir óneitanlega sú hætta að vandamálið vaxi. Því er mikilvægt að stjórnendur búi yfir þekkingu og reynslu í að taka samtalið til að geta brugðist við þegar við á.
Samtölin geta verið mismunandi. Þau geta til dæmis verið leiðbeinandi samtöl þar sem ræða þarf ófullnægjandi frammistöðu, samskipti sem þarf að bæta eða eitthvað annað sem tengist vinnustaðnum og þarf að ræða.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukinn skilning á því hvaða þættir eru mikilvægir til að eiga gott og gagnlegt samtal og auki hæfni sína í því að taka slík samtöl. Hvernig við setjum okkur sem best í spor þess sem við ræðum við og pössum upp á að gæta sálræns öryggis. Farið verður yfir undirbúning, hvað skiptir mestu máli í sjálfu samtalinu og hvernig er best að fylgja því eftir.
Þessu námskeiði er ætlað að undirbúa og þjálfa stjórnendur og færa þeim réttu verkfærin og tólin til að tækla þetta verkefni stjórnandans.
Þetta námskeið, sem er í formi fyrirlestrar, umræðna í hóp og verklegra æfinga, er ætlað öllum sem vilja auka færni sína og fá aukið sjálfstraust í að taka samtalið í vinnunni.
15. október 2026
4 klst. – 1 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
15. október kl. 8:30 – 12:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám5. október – 6. október 2026
8 klst. – 2 skipti
80.200 kr.
Staðnám7. október – 8. október 2026
6 klst. – 2 skipti
65.800 kr.
Staðnám8. október – 9. október 2026
8 klst. – 2 skipti
75.800 kr.
Staðnám12. október – 18. nóvember 2026
35 klst. – 10 skipti
Fullbókað – skrá á biðlista
299.000 kr.
Staðnám19. október – 20. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
68.900 kr.
Fjarnám19. október – 20. október 2026
8 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
72.900 kr.
Fjarnám20. október 2026
3,5 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
38.400 kr.
Staðnám20. október – 21. október 2026
6 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
58.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.