Fara í meginmál

Að­ferða­fræði mark­þjálf­un­ar fyrir stjórn­end­ur

5 stjörnur

Á þessu nám­skeiði læra stjórn­end­ur að til­einka sér grunn­þætti mark­þjálf­un­ar og hvernig þeir geta nýtt þá í dag­legu starfi.

Árangur stjórnenda byggir í auknum mæli á hæfni þeirra til að laða fram það besta í sínu fólki. Markþjálfun hefur fest sig í sessi sem öflug og áhrifarík aðferðafræði sem veitir stjórnendum verkfæri til að skapa skýrari sýn, meiri ábyrgð og öflugri árangur hjá teymum sínum.

Á þessu námskeiði læra stjórnendur að tileinka sér grunnþætti markþjálfunar og hvernig þeir geta nýtt þá í daglegu starfi. Þátttakendur munu öðlast skilning á hvernig öflug samtöl, virk hlustun og markvissar spurningar geta valdeflt starfsfólk, aukið sjálfstraust, ýtt undir frumkvæði og leyst úr læðingi leynda hæfileika innan vinnustaðarins.

Námskeiðið styrkir stjórnendur í að:

  • Byggja upp og viðhalda trausti og opnum samskiptum í teymum
  • Hvetja starfsfólk til aukinnar ábyrgðar og sjálfstæðrar hugsunar
  • Leysa úr áskorunum með því að virkja visku og hæfileika teyma sinna
  • Styrkja eigin leiðtogafærni með aukinni sjálfsþekkingu

Stjórnendur sem tileinka sér aðferðafræði markþjálfunar eru betur í stakk búnir til að skapa heilbrigða og jákvæða vinnustaðamenningu, draga úr streitu, og efla árangur sinn og starfsmanna sinna. Með markþjálfun öðlast þeir mikilvæga færni sem eykur skilvirkni og ánægju í starfi og styður við langtíma velgengni fyrirtækisins.

Námskeiðið er fyrir stjórnendur sem vilja styrkja eigin leiðtogahæfni, læra nýjar aðferðir i stjórnun og ýta undir aukna ábyrgð og vöxt á vinnustaðnum.

„Mátu­lega langt og frá­bær fyr­ir­les­ari."

Staðnám

29. október – 19. nóvember 2026

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

29. október kl. 9:00 – 12:00

19. nóvember kl. 13:00 – 15:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

61.900 kr.

Snemmskráning: 19. október. Almennt verð: 68.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Aðferðafræði markþjálfunar fyrir stjórnendur

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.