Fara í meginmál

Rekstr­aráætl­un - gerð, upp­bygg­ing, gervi­greind

5 stjörnur

Lærðu að nýta gervi­greind á ábyrg­an hátt við gerð rekstr­aráætl­un­ar og kynntu þér upp­bygg­ingu og helstu þætti þessa lyk­ilplaggs í stjórn­un fyr­ir­tækja.

Rekstraráætlun er lykilplagg í stjórnun fyrirtækja – hún endurspeglar markmið eigenda og stjórnenda og þjónar sem áttaviti í daglegri starfsemi. Á þessu námskeiði er farið yfir uppbyggingu og helstu þætti rekstraráætlunarinnar, ásamt því að sýnt er hvernig gervigreind getur stutt við gerð hennar og eflt ákvarðanatöku.

Þátttakendur fá innsýn í hvernig hefðbundnar aðferðir við áætlanagerð má bæta með gervigreindarlausnum sem auðvelda skipulagningu, nákvæmari spár og stöðugt endurmat á forsendum. Einnig verður fjallað um notkun rúllandi áætlana og hvernig þær nýtast í innkaupa- og birgðastýringu.

Námskeiðið hentar stjórnendum, fjármálastjórum, frumkvöðlum og öllum þeim sem vilja efla færni sína í áætlanagerð og kynnast nýtingu gervigreindar til að styðja við betri ákvarðanatöku.

„Kenn­ari hefur mik­inn áhuga á efn­inu og við skild­um vel það sem var til um­ræðu."

Staðnám

24. september – 25. september 2026

8 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

24. september kl. 8:30 – 12:30

25. september kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

72.900 kr.

Snemmskráning: 14. september. Almennt verð: 80.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Rekstraráætlun - gerð, uppbygging, gervigreind

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.