Kyn­heil­brigði fatl­aðra: Fag­leg nálg­un í þjón­ustu

5 stjörnur
Á nám­skeið­inu fær starfs­fólk fræðslu og hag­nýt verk­færi til að taka fag­leg­ar, virð­ing­ar­full­ar og opnar um­ræð­ur við fatl­að fólk um kyn­heil­brigði.

Á þessu námskeiði fær starfsfólk fræðslu og hagnýt verkfæri til að taka faglegar, virðingarfullar og opnar umræður við fatlað fólk um kynheilbrigði. Fatlað fólk hefur sama rétt og aðrir til kynlífs, sjálfsfróunar, nándar og sambanda. Þrátt fyrir það hefur umræðan oft verið tabú eða hreinlega gleymst í þjónustu og daglegu starfi. Afleiðingin getur verið skortur á fræðslu, óöryggi, skömm og rangar eða óraunhæfar hugmyndir um kynlíf og sambönd.

Námskeiðið byggir á mannréttindum fatlaðs fólks og hvernig starfsfólk getur skapað örugg rými þar sem einstaklingar fá fræðslu, stuðning og tækifæri til að læra um eigið kynheilbrigði. Lögð er áhersla á einfalt og rétt orðaval, að nota fræðileg heiti yfir líkams- og kynfæri, og að ræða málin á jafningjagrundvelli án þess að tala niður til fólks.

Einnig verður fjallað um mikilvægi einkarýmis, mörk, samþykki og hreinlæti. Sérstök áhersla er á hvernig starfsfólk getur komið í veg fyrir skömm, vanlíðan og óöryggi og í staðinn skapað traust, öryggi og heilbrigða umræðu.Að loknu námskeiði er starfsfólk betur í stakk búið til að ræða kynheilbrigði og hreinlæti sem eðlilegan hluta líkamsþroska, forðast fordóma og tabú, og styðja einstaklinga við að byggja upp jákvæða og virðingarfulla sjálfsmynd.

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar með fötluðu fólki, t.d. í grunn- og framhaldsskólum, frístundastarfi, vinnu og virkni eða búsetuúrræðum. Engar forkröfur eru gerðar.

„Nám­skeið­ið í heild gott og mik­il­væg um­ræða sem þarf að vil­halda og verða opn­ari."

Fjarnám

29. október 2026

3,5 klst – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

29. október kl. 9–10

Kenn­ari
Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
28.900 kr.

Snemmskráning: 20. október. Almennt verð: 31.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Kynheilbrigði fatlaðra: Fagleg nálgun í þjónustu

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.