Fókus og flæði í truflunum

Í þessu námskeiði færðu hagnýtar aðferðir til að ná stjórn á hugsunum, halda fókus og komast oftar í flæði, líka þegar umhverfið er krefjandi.

Upplifir þú stöðugt truflanir í vinnunni eða einkalífinu sem taka frá þér orku og einbeitingu? Í þessu námskeiði færðu hagnýtar aðferðir til að ná stjórn á hugsunum, halda fókus og komast oftar í flæði, líka þegar umhverfið er krefjandi.

Námskeiðið byggir á aðferðum úr íþróttasálfræði sem heimsklassa íþróttafólk notar til að halda fókus undir álagi og ná sínum besta árangri á stærsta sviðinu. Aðferðirnar eru yfirfærðar á daglegt líf á lifandi og skemmtilegan hátt. Í námskeiðinu eru hugtökin fókus og flæði útskýrð auk þess sem farið er í mismunandi tegundir truflana sem hafa áhrif á athygli og afköst. Þú lærir og prófar fjórar einfaldar aðferðir til að styrkja athygli, sjálfstjórn og nærveru í þeim verkefnum sem skipta þig máli. Markmiðið er að kenna þér færni sem hjálpar þér að halda fókus í daglegu lífi, vinna betur undir álagi, hraða og í truflunum.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta einbeitingu og frammistöðu í krefjandi aðstæðum, óháð starfsgrein eða bakgrunni. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir fólk sem vinnur í hröðu, truflandi umhverfi, upplifir álag eða vill verða betra í að halda fókus í mikilvægum verkefnum.

Í gangiNetnám

Engir fundir skráðir fyrir þetta námskeið

1 klst

Hvar og hvenær sem er

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Hefurðu áhuga á námskeiðinu?

Ég hef áhuga

Fókus og flæði í truflunum

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.