Fara í meginmál

Vel­ferð­ar- og við­veru­stjórn­un: Hag­nýt verk­færi

Há­mark­aðu vellíð­an og vel­gengni á þínum vinnu­stað með heild­stæðri við­veru­stjórn­un.

Á þessu námskeiði færðu hagnýt verkfæri og innsýn í reynslusögur sem styrkja getu þína til að halda í mannauðinn og efla vinnustaðinn til muna.

Velferðar- og viðverustjórnun er lykilþáttur í mannauðsstjórnun og snýst um mun meira en eftirlit og talningu veikindadaga. Námskeiðið byggir á heildstæðri nálgun sem spannar forvarnir, markviss viðbrögð og farsæla endurkomu starfsfólks til vinnu. Lögð er áhersla á forvarnamiðaða nálgun þar sem hún hámarkar árangur, dregur úr kostnaði og sparar tíma.

Gestur úr atvinnulífinu kemur í heimsókn og deilir með þátttakendum vegferð sinni við innleiðingu heildstæðrar viðverustjórnunar.

Námskeiðið er ætlað mannauðsfólki og stjórnendum á öllum stigum sem vilja efla velferð á sínum vinnustað, beita forvörnum í stað viðbragða, draga úr fjarveru og styðja við vellíðan starfsfólks á markvissan hátt.

Staðnám

10. febrúar – 24. febrúar 2027

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

10. febrúar kl. 9:00 – 11:30

24. febrúar kl. 9:00 – 11:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

47.500 kr.

Snemmskráning: 1. febrúar. Almennt verð: 52.300 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Velferðar- og viðverustjórnun: Hagnýt verkfæri

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.