Copilot í daglegu starfi

Náðu lengra með Microsoft Copilot með hagnýtri þjálfun.

Á þessu námskeiði leggjum við áherslu á hagnýta notkun Copilot í daglegu starfi með áherslu á verklega færni og lausnir fyrir daglega vinnu.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta (2 klst.) er lagður grunnur að hvað Copilot er, hvernig Copilot virkar og hvernig á að byrja að nota Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum. Í seinni hluta (3 klst.) förum við dýpra og í ítarlegar aðferðir, gagnlegar brellur og beinar æfingar sem hjálpa þér að ná því besta út úr Copilot.

Áhersla er lögð á verklega þjálfun og þátttakendur vinna með sína eigin tölvu í gegnum námskeiðið.

Námskeiðið er fyrir alla sem nota Microsoft 365 og hafa Copilot með premium leyfi.

Staðnám

20. maí – 21. maí 2026

5 klst – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

20. maí kl. 10–12

21. maí kl. 9–12

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
51.600 kr.
Skrá mig

Ég hef áhuga

Copilot í daglegu starfi

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.