Sjálfs­traust og sýni­leiki í starfi

Kynntu þér mik­il­vægi sjálfs­trausts í starfi og lærðu leið­ir til að verða sýni­legri í starfi á þínum for­send­um.

Á þessu námskeiði er lögð sérstök áhersla á sjálfstraust og sýnileika í starfi, auk þess sem fjallað er um hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið starf og vinnuumhverfi þannig að það styðji betur við vellíðan þeirra.

Í fyrri hluta námskeiðsins skoða þátttakendur hvernig sjálfstraust, sjálfsöryggi og sjálfstrú birtast í daglegum verkefnum, samskiptum, ákvörðunum og tækifærum til áhrifa. Unnið er með leiðir til að þekkja eigið faglegt virði, treysta eigin dómgreind, láta rödd sína heyrast og taka pláss á eðlilegan, faglegan og þægilegan hátt.

Jafnframt verður fjallað um þætti sem geta haldið fólki aftur í starfi, svo sem innri gagnrýni, fullkomnunaráráttu, samanburð, ótta við að vera „of mikið“ eða vana við að gera lítið úr eigin framlagi. Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að styrkja sig innan frá, auka sýnileika sinn á eigin forsendum og móta starf sitt með meðvituðum hætti þannig að það endurspegli betur styrkleika þeirra, gildi og þarfir.

Í seinni hluta námskeiðsins er fjallað um starfsmótun, það er hvernig fólk getur haft áhrif á eigið starf með litlum, raunhæfum og meðvituðum breytingum. Þátttakendur greina hvað veitir þeim orku í starfi, hvað dregur úr henni og hvar tækifæri liggja til að tengja starfið betur við eigin styrkleika, gildi, þarfir og áherslur.

Námskeiðið er blanda af fræðslu, sjálfskoðun, umræðum og hagnýtum æfingum. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur skýrari mynd af eigin faglegu virði, aukinn skilning á því hvernig þeir geta orðið sýnilegri í starfi og 1–3 raunhæfar breytingar sem þeir geta unnið með til að móta starf sitt betur að eigin þörfum og lífi.

Námskeiðið er ætlað fólki sem vill efla sjálfstraust sitt í starfi, auka sýnileika sinn á vinnustaðnum og hafa meiri áhrif á eigið starf og starfsþróun.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja standa betur með sjálfum sér, nýta styrkleika sína markvissar og skapa meira jafnvægi, orku og tilgang í starfi.

Námskeiðið hentar breiðum hópi starfsfólks sem vill þróast í starfi, taka virkari þátt í eigin starfsþróun og móta starf sitt með meðvitaðri hætti.

Staðnám

7. október – 8. október 2026

6 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

7. október kl. 13:00 – 16:00

8. október kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari
Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
58.900 kr.

Snemmskráning: 27. september. Almennt verð: 64.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Sjálfstraust og sýnileiki í starfi

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.