Fara í meginmál

Ís­lands­saga

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að veita yf­ir­sýn yfir þróun ís­lensks sam­fé­lags frá land­námi til nú­tím­ans.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir þróun íslensks samfélags frá landnámi til nútímans og skilja hvernig sögulegir atburðir hafa mótað stjórnskipan, efnahag, menningu og sjálfsmynd þjóðarinnar. Fjallað er um landnám og upphaf byggðar, þjóðveldisöld, kristnitöku og siðaskipti, auk áhrifa einokunarverslunar, plága og breyttrar samfélagsgerðar fyrri alda. Sérstök áhersla er lögð á sjálfstæðisbaráttu, lýðræðisþróun, heimsstyrjaldir og þorskastríðin sem lykilþætti í mótun nútíma Íslands. Jafnframt er rýnt í söguskoðun og notkun heimilda og greint hvernig saga landsins birtist í bókmenntum, menningu og þjóðarsjálfsmynd. Nemendur vinna með ólíkar heimildir og sjónarhorn og setja sögulega atburði í samhengi við þróun íslensks samfélags og alþjóðleg tengsl.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst helstu tímabilum og lykilatburðum Íslandssögunnar frá landnámi til nútímans.
  • útskýrt áhrif stjórnskipunar, trúarbragða og efnahagsbreytinga á samfélagsþróun.
  • borið saman ólíkar söguskoðanir og rökstutt afstöðu sína með tilvísun í heimildir.
  • sett sögulega atburði í samhengi við mótun þjóðarsjálfsmyndar og menningar.
  • samið hnitmiðaða og fræðilega umfjöllun um afmarkað efni í Íslandssögu.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er: 14. nóvember, kl. 9:00 - 16:00.

Stað- og fjarnám

20. október – 14. nóvember 2026

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

20. október kl. 17:00 – 19:55

14. nóvember kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

125.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Íslandssaga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.