StaðnámLykillinn að Berlín
7. september – 9. september 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Á þessu skemmtilega námskeiði er fræðst um lestir sem fararmáta, sér í lagi í Evrópu og hvernig hægt er að komast um á þægilegan hátt, styttri og lengri leiðir.

Lestarferðalög bjóða upp á þægilegan fararmáta við allra hæfi og stundum með fegursta landslag beint fyrir utan gluggann. Hugurinn fer á flug og hjartað tekur gleðikipp.
Ísland er eitt fárra landa án járnbrautalesta. Á námskeiðinu fræðumst við um þennan fararmáta sem er oft vanmetinn af Íslendingum. Sérstök áhersla er lögð á lestir í Evrópu og hvernig hægt er að komast um á þægilegan hátt, styttri og lengri leiðir. Farið verður í praktíska hluti, hvernig hægt er að skipuleggja og bera sig að á lestarstöðvum. Sérstaklega verður fjallað um undraheim næturlestanna, hvernig þær eru að fá uppreist æru og þá athygli sem þær eiga skilið á tímum kolefnisfótspora.
29. október – 5. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
29. október kl. 19:00 – 21:00
5. nóvember kl. 19:00 – 21:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám7. september – 9. september 2026
4 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
25.900 kr.
Fjarnám21. október 2026
2,5 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
21.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.