Fara í meginmál

Ís­lensk menn­ing

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að veita yf­ir­sýn yfir þróun ís­lenskr­ar menn­ing­ar frá upp­hafi byggð­ar til sam­tím­ans.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir þróun íslenskrar menningar frá upphafi byggðar til samtímans og ígrunda hvernig hún birtist í daglegu lífi, listum og samfélagi. Fjallað er um hversdagsmenningu, breytingar á lifnaðarháttum og þjóðarhefðum, auk þróunar bókmennta og listgreina, svo sem myndlistar, tónlistar, byggingarlistar, kvikmyndagerðar og hönnunar. Rýnt er í þjóðsögur og norræna goðafræði sem menningarlegar birtingarmyndir og áhrif þeirra á sjálfsmynd og gildi samfélagsins. Einnig er greint hvernig íslensk menning hefur mótast í samspili við alþjóðlega strauma og hvernig menningararfurinn birtist í samtímanum. Í tengslum við námskeiðið heimsækja nemendur söfn og átta sig á hvernig menningu og sögu er miðlað til gesta. Áhersla er lögð á að tengja menningararf við nútímasamfélag og beita fræðilegum hugtökum við greiningu og miðlun.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst helstu þáttum og þróun íslenskrar menningar frá upphafi til nútímans.
  • útskýrt áhrif bókmennta, lista og efnismenningar á samfélag og sjálfsmynd.
  • greint þjóðsögur og goðafræði sem spegil menningarlegra gilda og breytinga.
  • tengt menningararf Íslands við samtíma og alþjóðlegt samhengi.
  • borið kennsl á lykilstefnur og verk í íslenskri bókmennta- og listasögu.
  • greint hlutverk safna í miðlun menningararfs.
  • metið hvernig sýningar og framsetning hafa áhrif á upplifun og skilning gesta.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er: 5. desember, kl. 9:00 - 16:00.

Stað- og fjarnám

17. nóvember – 5. desember 2026

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

17. nóvember kl. 17:00 – 19:55

5. desember kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

125.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Íslensk menning

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.