Fara í meginmál

Ferða­þjón­usta og áhrif ferða­mennsku

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að veita inn­sýn í þróun ferða­mennsku og áhrif henn­ar á um­hverfi, sam­fé­lag og efna­hag, bæði á heimsvísu og á Ís­landi.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í þróun ferðamennsku og áhrif hennar á umhverfi, samfélag og efnahag, bæði á heimsvísu og á Íslandi. Fjallað er um helstu kenningar, lykilhugtök og hegðun ferðamanna, sem og umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif, þolmörk og sjálfbæra þróun. Einnig er tekið á náttúrusiðfræði, ábyrgri umgengni og grunnatriðum í rekstri og markaðssetningu ferðaþjónustu, þar á meðal hlutverki samfélagsmiðla.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst þróun ferðamennsku og helstu hugtökum ferðamálafræða.
  • útskýrt hegðun og væntingar ferðamanna í tengslum við upplifun og áfangastaði.
  • lýst helstu áhrifum ferðamennsku á umhverfi, samfélag og efnahag.
  • útskýrt hugtakið þolmörk áfangastaða og nefnt einfaldar aðgerðir sem styðja við sjálfbæra þróun.
  • notað hugtök í náttúrusiðfræði til að lýsa umgengni og ábyrgð í ferðaþjónustu.
  • útskýrt grunnatriði í stofnun, rekstri og markaðssetningu ferðaþjónustufyrirtækja.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er: 30. janúar, kl. 9:00 - 16:00.

Stað- og fjarnám

5. janúar – 30. janúar 2027

Tímalengd ekki skráð

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

5. janúar kl. 17:00 – 19:55

30. janúar kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

125.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Ferðaþjónusta og áhrif ferðamennsku

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.