Fara í meginmál

Hag­nýt­ur húmor - traust, tengsl og áhrif í starfi

Lærðu að nýta húmor á mark­viss­an og fag­leg­an hátt bæði í starfi og sam­skipt­um.

Húmor getur verið öflugt verkfæri í samskiptum. Hann getur hjálpað til við að vekja áhuga, skapa tengsl og létta stemningu þegar vel tekst til. Á þessu hagnýta námskeiði skoðum við hvernig hægt er að nýta húmor á markvissan og faglegan hátt bæði í starfi og samskiptum.

Þátttakendur læra hvernig húmor getur stutt við samskipti, vakið áhuga, dregið úr spennu og hjálpað til við að skapa jákvætt andrúmsloft í starfi. Með stuttum æfingum og virkri þátttöku fá þátttakendur tækifæri til þess að prófa mismunandi leiðir til þess að nota húmor á fundum, í kynningum, kennslu eða daglegum samskiptum. Einnig er skoðað hvenær húmor getur verið gagnlegur og hvenær er rétt að fara aðrar leiðir.

Markmiðið er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á hlutverki húmors í samskiptum og fái aukið öruggi í að beita honum á þann hátt sem hentar þeim sjálfum og þeirra starfi.

Námskeiðið hentar öllum sem vinna með fólki og vilja efla samskipti sín, svo sem stjórnendum, kennurum og leiðbeinendum, fyrirlesurum, þjálfurum, sölu- og þjónustufólki og heilbrigðisstarfsfólki, svo dæmi séu tekin.

Staðnám

29. október 2026

3 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

29. október kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

32.900 kr.

Snemmskráning: 19. október. Almennt verð: 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Hagnýtur húmor - traust, tengsl og áhrif í starfi

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.