Fara í meginmál

Á slóð­um Ver­d­is og Falstaff

Skyggnstu á bak við tjöld upp­setn­ing­ar á gamanóper­unni Falstaff eftir ít­alska meist­ar­ann Giu­seppi Verdi.

Í samstarfi við Óperuna og Þjóðleikhúsið

Fyrsta stóra uppfærsla nýrrar Óperu á Íslandi verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd. Falstaff verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu og mun Sinfóníuhljómsveit Íslands sjá um hljóðfæraleik.

Í tilefni sýningarinnar er haldið námskeið þar sem þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynna sér sögu ítalska tónskáldsins Giuseppes Verdi og síðustu óperu hans, Falstaff. Verdi er frægur fyrir að hafa túlkað allar mannlegar tilfinningar með tónum á sama hátt og Shakespeare miðlaði hinu sama með orðum. Á námskeiðinu verður fjallað um snilli þessa tveggja máttugu meistara og skoðuð hin mikilfenglega persóna sem þeim þótti tilefni til að setja í sögu: Sör John Falstaff. Jafnframt fá þátttakendur innsýn í þann undraheim sem býr að baki svo viðamikillar óperuuppsetningar en auk fyrirlestrakvölda mun námskeiðshópurinn fylgjast með æfingu á óperunni, hitta söngvara og listræna stjórnendur og upplifa svo fyrst allra þessa uppfærslu á generalprufu í Eldborg.

Miði á generalprufuna er innifalinn í námskeiðsgjaldi.

Dagskrá námskeiðs:

  • Mán. 8. feb. kl. 20:00 – 22:00: Magnús Lyngdal fjallar um sögu og samhengi ítalska tónskáldsins Giuseppes Verdi (1813 – 1901) en 19. öldin er jafnan nefnd „gullöld óperunnar“ (fyrirlestur hjá Endurmenntun, Dunhaga 7).
  • Mán. 15. feb. kl. 20:00 – 22:00: Magnús Lyngdal fjallar sérstaklega um síðustu óperu Verdis, Falstaff, þ.m.t. söguþráð og hlutverkaskipan og Brynhildur Guðjónsdóttir fjallar um Falstaff - persónuna í verkum Shakespeares og persónuna í meðförum Boito og Verdis. Hún mun auk þess veita innsýn inn listrænt teymi óperunnar, skoða þekkt þemu Verdis og notkun íslenskunnar í uppfærslunni (fyrirlestur hjá Endurmenntun, Dunhaga 7).
  • Fim. 18. feb. kl. 18:15 – 20:30: Heimsókn á æfingu og spjall við söngvara og listrænt teymi sýningarinnar.
  • Fim. 4. mars kl. 14:00 – 17:00: Generalprufa í Eldborgarsal Hörpu.

Nánari upplýsingar um leiksýninguna er að finna á vef Þjóðleikhússins.

Staðnám

8. febrúar – 4. mars 2027

9 klst. – 4 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

8. febrúar kl. 20:00 – 22:00

15. febrúar kl. 20:00 – 22:00

18. febrúar kl. 18:15 – 20:30

4. mars kl. 14:00 – 17:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

24.900 kr.

Snemmskráning: 28. janúar. Almennt verð: 27.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Á slóðum Verdis og Falstaff

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.