Fara í meginmál

Róm - borg­in ei­lífa

Í Róm flétt­ast saman á ein­stak­an hátt forn­ar minj­ar, glæsi­leg­ir gos­brunn­ar, þröng­ar götur og lif­andi borg­ar­menn­ing.

Á þessu námskeiði verður borgin skoðuð bæði í sögulegu samhengi og sem heillandi áfangastaður fyrir ferðalanga í dag.

Á fyrra námskeiðskvöldinu verður stiklað á stóru í sögu Rómar, allt frá Rómúlusi og Remusi til þess tíma þegar Róm varð höfuðborg sameinaðrar Ítalíu. Markmiðið er ekki að kafa djúpt í einstök tímabil, heldur veita þátttakendum skýra yfirsýn yfir helstu kafla í sögu borgarinnar og hvernig þeir hafa mótað Róm eins og við þekkjum hana í dag.

Á síðara námskeiðskvöldinu verður sjónum beint að hagnýtum atriðum sem gagnlegt er að þekkja áður en haldið er af stað til Rómar. Sagt verður frá hverfum borgarinnar og sérkennum þeirra, samgöngum, stöðum sem vert er að heimsækja og ýmsum minna þekktum stöðum sem aðeins heimafólk þekkir.

Námskeiðið hentar jafnt þeim sem eru að heimsækja Róm í fyrsta sinn og þeim sem hafa áður komið til borgarinnar en vilja kynnast henni betur. Engrar fyrri þekkingar er krafist — aðeins áhuga og forvitni um eina merkilegustu borg Evrópu.

Staðnám

23. nóvember – 25. nóvember 2026

4 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

23. nóvember kl. 19:00 – 21:00

25. nóvember kl. 19:00 – 21:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

25.900 kr.

Snemmskráning: 15. nóvember. Almennt verð: 28.500 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Róm - borgin eilífa

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.