Fara í meginmál

Skatta­laga­breyt­ing­ar 2027

5 stjörnur

Hag­nýtt nám­skeið fyrir bók­ara og aðra sem sjá um bók­hald fyr­ir­tækja um breyt­ing­ar á skatta­lög­um fyrir árið 2027.

Farið verður yfir breytingar á skattalögum og reglugerðum sem hafa áhrif á tekjuárinu 2027. Auk þess verður tæpt á þeim breytingum sem hafa áhrif á framtalsgerð 2027 vegna tekna 2026. Ef tilefni gefst verður farið yfir þá úrskurði yfirskattanefndar og/eða dóma sem hafa leitt til breyttrar framkvæmdar á skattalögum.

Fyrst og fremst verður farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um tekjuskatt, virðisaukaskatt, tryggingagjald og staðgreiðslu skatta. Einnig verður farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á skattmati vegna tekna áranna 2026 og 2027.

Þá verður farið yfir nýjar alþjóðareglur um skattamál. Ef einhverjir úrskurðir yfirskattanefndar og/eða dómar á árinu 2026 hafa leitt til þess að framkvæmd skattalaga breytist verður einnig farið yfir þá.

Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað viðurkenndum bókurum og öðrum sem skjá um bókhald fyrirtækja.

„Kenn­ari er vel að sér í fag­inu og kom efn­inu vel frá sér"

Staðnám

28. janúar 2027

3 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

28. janúar kl. 9:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

32.900 kr.

Snemmskráning: 18. janúar. Almennt verð: 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Skattalagabreytingar 2027

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.