StaðnámSjöundármálið - sekt eða sakleysi?
22. október – 5. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
37.300 kr.
Hvernig verða gimsteinar til og hvað ræður verðmæti þeirra? Skyggnstu inn í leyndardóma þeirra á þessu skemmtilega námskeiði!

Gimsteinar hafa heillað mannkynið frá örófi alda. Heimur gimsteinanna er spennandi, sveipaður dulúð og ævintýraljóma. Á þessu námskeiði munum við skyggnast inn í þennan heim. Við kynnumst demöntum, rúbínum, safír, emeröldum og fleiri tegundum gimsteina. Farið verður yfir öll mikilvægustu atriðin í viðskiptum með gimsteina sem og uppruna þeirra. Fyrr á öldum var verðmæti gimsteina lengst af metið á annan hátt en nú er. Þeir tengdust töfrum eða höfðu lækningamátt og þeim fylgdi gæfa eða ógæfa.
Í nútímaviðskiptum með gimsteina byggir verðmætamatið á tegund, lit, fegurð, meðhöndlun og uppruna steinsins. Af um 3000 steindum sem til eru á jörðinni teljast aðeins um 50 - 130 þeirra vera gimsteinar, eftir mismunandi skilgreiningum.
Á námskeiðinu fylgjum við gimsteinunum frá námunni inn í skartgripaverslunina, kynnumst hvar og hvernig þeir verða til, fáum innsýn í framandi námusvæði, hvernig gimsteinn er gerður að söluvöru og hverjir höndla með hann. Er það góð fjárfesting að kaupa gimstein og er óhætt að kaupa hann hvar sem er? Af hverju eru viðskipti með demanta háð öðrum lögmálum en viðskipti með aðra gimsteina? Eru gimsteinar á Íslandi? Þessu og fjölmörgu öðru verður svarað.
Námskeiðið er fyrir skartgripahönnuði, gullsmiði og aðra sem vinna með gimsteina. Það hentar einnig öllum þeim sem hafa áhuga á að fræðast um gimsteina.
8. mars – 15. mars 2027
5 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
8. mars kl. 19:30 – 22:00
15. mars kl. 19:30 – 22:00
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Staðnám22. október – 5. nóvember 2026
6 klst. – 3 skipti
37.300 kr.
Staðnám27. október – 3. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
28.500 kr.
Staðnám29. október – 5. nóvember 2026
4 klst. – 2 skipti
28.500 kr.
Staðnám2. nóvember – 30. nóvember 2026
10 klst. – 5 skipti
Snemmskráningarverð
53.900 kr.
Staðnám2. nóvember – 16. nóvember 2026
7,5 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
41.500 kr.
Staðnám3. nóvember – 24. nóvember 2026
8 klst. – 4 skipti
Snemmskráningarverð
44.900 kr.
Staðnám4. nóvember – 11. nóvember 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
29.900 kr.
Staðnám7. nóvember 2026
2 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
14.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.