Fara í meginmál

SharePoint - frá grunni til of­ur­not­anda

Lærðu að nýta SharePoint betur í dag­legu starfi og koma upp skipu­lagi sem ein­fald­ar sam­vinnu og upp­lýs­inga­miðl­un.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að byggja upp og annast SharePoint-svæði frá grunni. Fjallað er um tengsl SharePoint við Teams, OneDrive og aðra hluta Microsoft 365, skipulag gagna með skjalasöfnum, listum, lýsigögnum, yfirlitum og efnisgerðum, auk útgáfustýringar, aðgangsheimilda og deilingar.

Kennslan sameinar stutta fyrirlestra, sýnikennslu og verklegar æfingar sem eiga að tryggja að þátttakendur geti strax nýtt þekkingu sína í starfi. Ekki er gert ráð fyrir forritun og námskeiðið nær ekki til miðlægrar kerfisstjórnunar hvorki í SharePoint umhverfinu né í Microsoft 365 (tenant-stjórnunar).

Námskeiðið er fyrir starfsfólk fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem nota eða eru að taka upp Microsoft 365 og vilja ná góðum tökum á SharePoint – t.d. skrifstofufólk, verkefnastjóra, gæðastjóra, skjalastjóra og þá sem eiga að verða tengiliðir eða „ofurnotendur“ á sínum vinnustað. Engar forkröfur eru gerðar um þekkingu á SharePoint, en almenn tölvufærni og grunnþekking á Office-forritum er æskileg.

Vinsamlega athugið að þátttakendur þurfa að mæta með eigin fartölvu og hafa aðgang að Microsoft 365 (t.d. vinnuaðgang) og hafa SharePoint-réttindi til að stofna svæði. Nánari leiðbeiningar eru sendar viku fyrir fyrsta tíma.

Staðnám

2. mars – 16. mars 2027

9 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

2. mars kl. 13:00 – 16:00

9. mars kl. 13:00 – 16:00

16. mars kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

73.500 kr.

Snemmskráning: 21. febrúar. Almennt verð: 80.900 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

SharePoint - frá grunni til ofurnotanda

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.