Fara í meginmál

Líf í bókum - Þús­und ára saga ís­lenskra bók­mennta

Hvers vegna urðum við bóka­þjóð og erum við það enn?

Íslensk bókmenntasaga býr í senn yfir miklu ríkidæmi og ótal gátum. Enginn veit með vissu af hverju Íslendingar skrifuðu einstakar og umfangsmiklar frásagnarbókmenntir í óbundnu máli á miðöldum. Æ síðan hafa Íslendingar ótal sinnum og við ólík tækifæri leitað í bókmenntahefðina, hvort heldur í sjálfstæðisbaráttu eða persónulegum vanda, hún hefur reynst þeim lykill að sjálfsvitund og þjóðarsögu.

Á námskeiðinu verður varpað ljósi á þessar gátur með hraðferð um bókmenntasöguna alla, en líka spurt um hvað var skrifað og hverjir máttu skrifa og rætt um vettvang bókmenntanna, læsi og bókamarkað.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á íslenskum bókmenntum.

Staðnám

5. apríl – 26. apríl 2027

8 klst. – 4 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

5. apríl kl. 19:30 – 21:30

12. apríl kl. 19:30 – 21:30

19. apríl kl. 19:30 – 21:30

26. apríl kl. 19:30 – 21:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

44.900 kr.

Snemmskráning: 25. mars. Almennt verð: 49.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Líf í bókum - Þúsund ára saga íslenskra bókmennta

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.