Fara í meginmál

Sigr­aðu ræðu­kvíð­ann - fram­halds­nám­skeið

Náðu enn betri tökum á ræðu­kvíð­an­um og efldu þig enn frek­ar í fram­sögn og fram­komu með þessu vand­aða fram­halds­nám­skeiði!

Hér er boðið upp á framhald fyrir öll þau sem sótt hafa hið vinsæla námskeiðið Stígðu fram – sigraðu ræðukvíðann hjá Endurmenntun HÍ.

Á fyrra námskeiðinu var farið í grunninn á bak við ræðukvíða, eða það að líða illa þegar maður þarf að tala fyrir framan annað fólk. Rýnt var í hvað algengast er að fólk hræðist, hverjar geta verið orsakirnar og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að hræðslan stýri okkur.

Á þessu námskeiði verður haldið áfram þar sem frá var horfið. Unnið er áfram með hagnýtar æfingar, hvernig hægt er að nýta glærusýningar til stuðnings og aðferðir kenndar í ræðutækni, framsögn og framkomu þar sem þátttakendur spreyta sig í öruggum aðstæðum.

Markmiðið með námskeiðinu er að komast enn nær því að sigrast á óttanum og að geta liðið betur í þessum aðstæðum.

Við vekjum einnig athygli á grunnnámskeiðinu Stígðu fram - sigraðu ræðukvíðann.

Staðnám

18. febrúar – 25. febrúar 2027

6 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

18. febrúar kl. 13:00 – 16:00

25. febrúar kl. 13:00 – 16:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

38.900 kr.

Snemmskráning: 8. febrúar. Almennt verð: 42.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Sigraðu ræðukvíðann - framhaldsnámskeið

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.