Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland

Námið er örnám í samstarfi við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ og samsvarar 30 ECTS einingum á grunnstigi háskóla.
Námstíminn nær yfir tvö misseri, kennsla hefst í september og náminu lýkur með brautskráningu í júní 2027.
Námið hefur verið vottað í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008.
Leiðsögunám Endurmenntunar Háskóla Íslands veitir nemendum yfirgripsmikla og faglega menntun sem undirbýr þá til að starfa sem leiðsögumenn á Íslandi. Í náminu er fjallað um fjölbreytt viðfangsefni sem eru undirstaða faglegrar og vandaðrar leiðsagnar, þar á meðal sögu og menningu Íslands, náttúrufræði og náttúruvernd, veðurfræði, öryggismál, viðbrögð við vá, ferðaþjónustu, samskiptafærni og leiðsagnartækni. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér hæfni til að miðla þekkingu á faglegan, skýran og ábyrgan hátt til ferðamanna.
Viðtöl við fyrrum nemendur
- „Veðurfræði aldrei verið jafn spennandi“ (14. apríl, 2025)
- „Veronika er þriðji ættliður leiðsögumanna“ (20. júní, 2023)
Opin námskeið í leiðsögunámi veturinn 2026 – 2027:
- Íslandssaga (20. október – 14. nóvember)
- Íslensk menning (17. nóvember – 5. desember)
- Ferðaþjónusta og áhrif ferðamennsku (5. janúar – 30. janúar)
- Lífríki Íslands (2. febrúar – 27. febrúar)
- Jarðfræði Íslands (25. febrúar – 11. apríl)
- Áfangastaðurinn Ísland (6. – 10. apríl)
Get ég fengið fyrra nám metið?
Hægt er að sækja um að fá fyrra nám metið inn í lengra nám hjá Endurmenntun HÍ. Slíkar beiðnir eru teknar fyrir eftir að búið er að samþykkja viðkomandi einstakling inn í námið. Fylgja skal reglum Endurmenntunar um mat á fyrra námi.
Upplýsingar
Nám á grunnstigi háskóla
1. september 2027
Tilkynningar
Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í byrjun mars fyrir nám haustið 2027.
