Fara í meginmál

Jarð­fræði Ís­lands

Meg­in­markmið nám­skeiðs­ins er að veita yf­ir­sýn yfir jarð­fræði­lega og veð­ur­fars­lega ferla sem hafa mótað Ís­land.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum. Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti: Án námsmats: fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar. Með námsmati: fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar.Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir jarðfræðilega og veðurfarslega ferla sem hafa mótað Ísland og skilja tengsl þeirra við landslag, náttúrufar og nýtingu auðlinda. Fjallað er um innræn og útræn öfl, svo sem eldvirkni, jarðskorpuhreyfingar, rof og veðrun, auk veðurfarssögu og loftslagsbreytinga. Rýnt er í sérkenni íslenskrar náttúru með hliðsjón af legu landsins og einangrun. Einnig er fjallað um jarðhita, vatnsorku og aðrar náttúruauðlindir í samhengi við sjálfbærni og náttúruvernd. Tekið er fyrir veðurfræði, túlkun veðurspáa og samspil veðurs og landslags. Að lokum er gerð grein fyrir myndun norðurljósa og helstu atriðum sem tengjast stjörnuskoðun og myndatöku. Áhersla er lögð á jarðfræðilæsi og notkun fræðilegra hugtaka við miðlun.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst helstu ferlum sem mótað hafa Ísland.
  • útskýrt áhrif veðurfarssögu og loftslagsbreytinga á landslag og náttúrufar.
  • greint tengsl jarðfræðilegra ferla og nýtingar náttúruauðlinda.
  • túlkað veðurathuganir og veðurspár í tengslum við skipulagningu ferða.
  • útskýrt myndun norðurljósa og grundvallaratriði stjörnuskoðunar.
  • beitt jarðfræðilegum hugtökum til að átta sig á og útskýra náttúrufyrirbæri.
  • miðlað fræðilegri umfjöllun um jarðfræði og veðurfræði á skýran og skipulegan hátt.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði. Staðlota í námskeiðinu er sunnudaginn 11. apríl 2027, kl. 9:00 – 16:00.

Stað- og fjarnám

25. febrúar – 11. apríl 2027

10 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

25. febrúar kl. 17:00 – 19:55

11. apríl kl. 9:00 – 16:00

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

146.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Jarðfræði Íslands

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.