StaðnámRekstur og heilbrigðisþjónusta (HJÚ142F)
Tímalengd ekki skráð
100.000 kr.
Fjallað er um hvernig aðferðir díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) geta eflt tilfinningastjórn og bætt lífsgæði einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda.

Á námskeiðinu er fjallað um hvernig aðferðir díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) nýtast í að efla tilfinningastjórn og bæta lífsgæði einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda. Tilfinningavandi getur m.a. birst í miklum tilfinningasveiflum, samskiptavanda, sjálfsskaða og sjálfsvígshegðun, truflun á sjálfsmynd og svart-hvítri hugsun. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru meðferðaraðilar í DAM-teymi Landspítala.
Tilfinningavandi einkennist af alvarlegum tilfinningalegum óstöðugleika sem getur haft áhrif á öll svið lífsins og valdið mikilli þjáningu hjá einstaklingum sem hann hafa og fjölskyldum þeirra. Einstaklingar með tilfinningavanda búa við mikla þjáningu og mæta oft litlum skilningi í umhverfinu. Díalektísk atferlismeðferð (DAM) er gagnreynd meðferð við tilfinningavanda en á Landspítala er hún veitt af sérhæfðu meðferðarteymi á göngudeild lyndisraskana.
DAM-meðferð byggist á færniþjálfun, viðurkennandi samskiptum og núvitund. Á námskeiðinu verður fjallað um tilfinningavanda; einkennamynd, orsakir, þróun og rannsóknir. Helstu atriði og uppbygging DAM-meðferðar verður kynnt. Farið verður í grunnatriði viðurkennandi samskipta sem eru árangursrík í meðferð einstaklinga með tilfinningalegan óstöðugleika. Nokkur meðferðartæki sem geta nýst á breiðum grundvelli verða kynnt s.s. keðjugreining, streituþolsplön og færni í tilfinningastjórn.
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og verklegum æfingum.
Þátttaka í námskeiðinu jafngildir ekki þjálfun sem þarf til að verða DAM-meðferðaraðili.
Námskeiðið er fyrir fagaðila í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða skólum.
26. október – 27. október 2026
9 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
26. október kl. 12:00 – 16:00
27. október kl. 8:30 – 13:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
StaðnámTímalengd ekki skráð
100.000 kr.
Fjarnám16. september 2026
1,5 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
12.000 kr.
Staðnám16. september – 21. september 2026
9 klst. – 3 skipti
Snemmskráningarverð
64.900 kr.
Staðnám22. september – 13. október 2026
5 klst. – 2 skipti
Snemmskráningarverð
45.900 kr.
Fjarnám24. september 2026
3 klst. – 1 skipti
Snemmskráningarverð
27.900 kr.
Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.