Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

5 stjörnur
Hér er fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.

Vilt þú auka starfsánægju og árangur? Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi.

Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun og þar af leiðandi betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.

Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennslufyrirkomulag er blanda af æfingum, dæmum og umræðum.

Námskeiðið er fyrir stjórnendur og öll þau sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað.

„Gott að heyra reynslusögur og fá hugmyndir til að taka með sér."

Staðnám

27. október 2026

3,5 klst – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

27. október kl. 9–12:30

Kennarar
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
37.400 kr.

Snemmskráning til og með 18. október. Almennt verð er 41.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.