Fara í meginmál

Hag­nýt launa­vinnsla

Viltu auka ör­yggi og fag­mennsku við krefj­andi verk­efni launa­sér­fræð­ings?

Viltu auka öryggi og fagmennsku við krefjandi verkefni launasérfræðings?

Á námskeiðinu er farið ítarlega yfir launavinnslu og hlutverk launasérfræðings. Unnið er með raunhæf dæmi sem endurspegla dagleg verkefni í starfi og þátttakendur fá heildstæða sýn á ferli launavinnslu frá upphafi til enda.

Farið er í helstu þætti launavinnslu, þar á meðal launaútreikninga, launaleiðréttingar, orlof og orlofsskuldbindingar, launabókhald og aðra þætti sem hafa áhrif á laun og launavinnslu. Einnig er lögð áhersla á verklag, nákvæmni og góða yfirsýn sem styður við fagleg vinnubrögð.

Að námskeiði loknu búa þátttakendur yfir traustri þekkingu og hagnýtri færni sem gerir þeim kleift að leysa raunveruleg verkefni sem launasérfræðingar standa frammi fyrir.

Kennarar eru þær Nína Birna Þórsdóttir, vörustjóri H3 launakerfisins hjá Advania og Christine Einarsson, launasérfræðingur hjá Þjóðleikhúsinu.

Auk þeirra sinna kennslu:

  • Guðmundur Heiðar Guðmundsson, lögmaður hjá SA.
  • Anna Lilja Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá ASÍ.
  • Jörundur Hartmann Þórarinsson, MA í skattarétti og reikningsskilum.

Námskeiðið er ætlað starfandi launasérfræðingum eða þeim sem hafa hug á slíku starfi. Einnig gagnast námskeiðið þeim sem starfa við bókhald eða mannauðsmál og vilja efla hæfni sína með aukinni sérfræðiþekkingu á sviði launavinnslu.

Þátttakendur koma með eigin tölvu (PC) á námskeiðið og unnin verða hagnýt verkefni á H3 launa- og mannauðskerfið sem sett verður upp á staðnum.

Staðnám

12. október – 18. nóvember 2026

35 klst. – 10 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

12. október kl. 9:00 – 12:30

14. október kl. 9:00 – 12:30

19. október kl. 9:00 – 12:30

21. október kl. 9:00 – 12:30

2. nóvember kl. 9:00 – 12:30

4. nóvember kl. 9:00 – 12:30

9. nóvember kl. 9:00 – 12:30

11. nóvember kl. 9:00 – 12:30

16. nóvember kl. 9:00 – 12:30

18. nóvember kl. 9:00 – 12:30

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Fullbókað

Verð

299.000 kr.

Skrán­ing á bið­lista

Hagnýt launavinnsla

Ég hef áhuga

Hagnýt launavinnsla

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.