Mannauðsstjórnun fyrir nýja stjórnendur

5 stjörnur
Á þessu námskeiði, sem ætlað er nýjum stjórnendum, verður fjallað um helstu þætti mannauðsstjórnunar frá ráðningu starfsmanna til starfsloka.

Á þessu námskeiði verður fjallað um helstu þætti mannauðsstjórnunar frá ráðningu starfsmanna til starfsloka.

Námskeiðið miðar að því að auka sjálfstraust og færni nýrra stjórnenda í mannauðstengdum málum, hvort sem um er að ræða mótttöku nýrra starfsmanna eða endurgjöf og samtöl. Einnig verður fjallað um vinnustaðamenningu og erfið starfsmannamál.

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur munu taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennsluaðferðir eru meðal annars æfingar, dæmi og umræður.

Námskeiðið er ætlað nýjum stjórnendum sem vilja öðlast meiri færni og efla sig í helstu þáttum mannauðsstjórnunar.

„Mjög praktískt námskeið og gott að fá verkfæri til að vinna með."

Staðnám

28. september – 29. september 2026

8 klst – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

28. september kl. 9–13

29. september kl. 9–13

Kennarar
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
69.600 kr.

Snemmskráning: 20. september. Almennt verð: 76.600 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Mannauðsstjórnun fyrir nýja stjórnendur

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.