Fara í meginmál

Svefn leik­skóla­barna

5 stjörnur

Á þessu fræðslu­nám­skeiði verð­ur leit­ast við að svara al­geng­um spurn­ing­um umönn­un­ar­að­ila um svefn barna á leik­skóla­aldri.

Nægur svefn er meginundirstaða líkamlegrar og andlegrar heilsu og þroska barna. Flestir umönnunaraðilar upplifa á einhverjum tímapunkti áskoranir í tengslum við svefntíma, daglúrinn og/eða nætursvefninn. Slíkar áskoranir geta undið hratt upp á sig og verið streituvekjandi fyrir börn og umönnunaraðila. Ef þú vilt læra hvernig er hægt að fyrirbyggja að slíkt gerist, kynnast mismunandi leiðum til að takast á við erfiðleika þegar þeir koma upp og/eða fræðast um svefn barna þá gæti þetta verið námskeið fyrir þig.

Á þessu fræðslunámskeiði verður leitast við að svara algengum spurningum umönnunaraðila um svefn barna á leikskólaaldri. Af hverju er svefn mikilvægur? Hversu mikinn svefn þurfa börn að jafnaði? Hvað telst til svefnerfiðleika? Hvaða umhverfisþættir geta ýtt undir og viðhaldið svefnerfiðleikum? Hvaða hlutverk spilar daglúrinn og hvenær á að taka hann út? Hvað eru góðar svefnvenjur? Hvað er til ráða ef barn fæst ekki í rúmið, er lengi að sofna, þarf aðstoð við það eða getur ekki sofið í sínu rúmi? Þetta eru spurningar sem allir umönnunaraðilar barna á leikskólaaldri ættu að geta nýtt sér svör við, sama hvort þeir eiga börn á leikskólaaldri sem eru að glíma við svefnerfiðleika eða vilja fyrirbyggja að eðlilegar svefntruflanir endi sem langvarandi svefnerfiðleikar.

Námskeiðið er fyrir þau sem koma að umönnun barna á leikskólaaldri, til dæmis foreldra, starfsfólk leikskóla, ömmur og afa.

„Fékk marga praktíska punkta sem eiga eftir að nýt­ast í starfi og með barna­börn­in."

Fjarnám

12. nóvember 2026

1,5 klst. – 1 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

12. nóvember kl. 9:30 – 11:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

11.900 kr.

Snemmskráning: 3. nóvember. Almennt verð: 13.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Svefn leikskólabarna

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.