Fara í meginmál

Áfall - hvað svo? Heilsu­far, líðan og leið­ir til bata

5 stjörnur

Á nám­skeið­inu er fjall­að um áföll, hvað ger­ist í lífi og lík­ama við þau og hvaða leiða er hægt að leita til að ná bata og vellíð­an.

Fæstir komast í gegnum lífið án áfalla og sumir lenda jafnvel í áföllum snemma á lífsleiðinni sem fylgja þeim út lífið. Stundum áttar fólk sig ekki á því strax að það hafi orðið fyrir áfalli, þó svo að það hafi upplifað erfiðar tilfinningar. Afleiðingar geta komið fram stuttu eftir áfallið eða mörgum árum eða áratugum seinna því líkaminn man og geymir reynsluna í taugakerfinu.

Afleiðingar af áföllum geta komið fram sem líkamleg, sálræn eða félagsleg vandamál eða erfiðleikar. Einkenni og afleiðingar geta verið allt frá ógleði til örorku.

Mikilvægt er að finna leiðir til úrvinnslu og vinna með reynsluna og minningarnar til að auka lífsgæði. Leiðir geta verið innan hefðbundna heilbrigðiskerfisins en einnig utan þess, sem óhefðbundnar leiðir. Mikilvægt er að bera virðingu fyrir þeim ólíku leiðum sem einstaklingar velja og nálgast hvern og einn með einstaklingsmiðaðri nálgun með samþættum (e. integrative) meðferðum. Áfallamiðuð nálgun er mikilvæg þegar unnið er með einstaklinginn og samfélagið.

Námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa áhuga en ekki er krafist menntunar eða reynslu af vinnu með áföll.

„Mjög ánægð með nám­skeið­ið og út­skýr­ing­ar kenn­ara."

Staðnám

15. október 2026

3 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

15. október kl. 19:00 – 22:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

22.900 kr.

Snemmskráning: 6. október. Almennt verð: 24.100 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Áfall - hvað svo? Heilsufar, líðan og leiðir til bata

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.