Fara í meginmál

Þýska fyrir byrj­end­ur II

Fram­hald af nám­skeið­inu Þýska fyrir byrj­end­ur I en nauð­syn­legt er að nem­end­ur hafi lokið því nám­skeiði eða hafi sam­bæri­leg­an grunn í þýsku.

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ.

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í þýsku máli á skömmum tíma og hafa lokið námskeiðinu Þýska fyrir byrjendur I eða hafa sambærilega forkunnáttu (í samráði við kennara). Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir grunnhugtök í þýskri málfræði. Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í þýsku.

Námskeiðið er kennt í 6 vikur, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.

Hæfniviðmið:

Í lok námskeiðs hafa nemendur:

  • náð tökum á einföldum orðaforða daglegs lífs og geti tjáð sig um sjálfa sig, fjölskyldu sína, sitt nánasta umhverfi eins og t.d. hýbýli.
  • öðlast skilning á grunnatriðum þýskrar málfræði.
  • þekkja og geta borið fram helstu málhljóð í þýsku máli.

Nemendur geta:

  • lesið einfalda texta á þýsku.
  • skilið einfalt hlustunarefni á þýsku.
  • ritað einfaldan texta á þýsku svo sem lýsingar á hýbýlum og persónum.

Nemendur munu einnig öðlast innsýn í menningu og þjóðfélög þýskumælandi landa.

Námskeiðið er kennt á ensku og þýsku.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa vinnubækur námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Momente A1 Kursbuch og Momente A1 Arbeitsbuch.

Staðnám

13. október – 19. nóvember 2026

18 klst. – 2 skipti

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Dag­skrá

13. október kl. 16:40 – 18:10

19. nóvember kl. 16:40 – 18:10

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

100.000 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Þýska fyrir byrjendur II

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.