Tími skáldanna - um skáldskap og skáldskaparfræði á Sturlungaöld

5 stjörnur
Hér er boðið upp á óvænt ferðalag um skáldskap þrettándu aldar.

Hér er boðið upp á óvænt ferðalag um skáldskap þrettándu aldar. Sturlungaöld var tími skálda og rithöfunda sem margir voru einnig gerendur í valdabaráttu aldarinnar. Hvernig stóð á því? Á námskeiðinu er kafað ofan í vísur ólíkra skálda, hlutverk kveðskapar í samfélaginu og hvernig hann var notaður í sögum eins og Sturlungu.

Sturlungaöld er tími skáldanna. Dróttkvæðar vísur eru heillandi og einstakar heimildir um samfélag og menningarheim þrettándu aldar. Hver vísa veitir innsýn í hugarheim og ímyndunarafl skáldsins, myndmálið varpar ljósi á umhugsun þess um heiminn og formið sýnir íþrótt skáldanna. En kveðskapur var ekki ætlaður til prívatbrúks. Hann skipti máli í samfélaginu, skapaði skáldinu stöðu, var valdatæki og gat valdið usla. Skáldin náðu jafnvel eyrum erlendra konunga og ortu fyrir sjálfan himnakónginn. Vísum var fléttað inn i sögur, ekki til skrauts heldur til að koma að öðrum sjónarmiðum en prósinn leyfði.

Á námskeiðinu förum við í óvænt ferðalag til Sturlungaaldar og greinum skáldskap stórkostlegra skálda eins og Kolbeins Tumasonar, Guðmundar Oddssonar, Ingjaldar Geirmundarsonar, Sturlu Þórðarsonar, Gissurar Þorvaldssonar og Snorra Sturlusonar, svo að nokkur séu nefnd. Aðalheimild námskeiðsins er Sturlunga, en einnig ómetanlegar kennslubækur í skáldskap, Snorra Edda og Þriðja málfræðiritgerð Ólafs Þórðarsonar.

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á íslenskri bókmenntasögu.

„Frábær yfirferð Guðrúnar og eindæma þekking á mjög fróðlegu og skemmtilegu efni."

Í gangiNetnám

Engir fundir skráðir fyrir þetta námskeið

12 klst

Hvar og hvenær sem er

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Hefurðu áhuga á námskeiðinu?

Ég hef áhuga

Tími skáldanna - um skáldskap og skáldskaparfræði á Sturlungaöld

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.