Fara í meginmál

Laug­ar­dags­leið­ang­ur - Tölvu­leik­ir með gervi­greind

Hvernig verð­ur tölvu­leik­ur til með hjálp gervi­greind­ar?

Á þessu námskeiði skoðum við hvernig gervigreind getur teiknað persónur, lífgað þær við, samið hljóð og hjálpað til við að setja saman leik, svo þú getir haldið áfram heima með þína eigin hugmynd.

Gervigreind hefur gjörbreytt því hvernig tölvuleikir verða til. Það sem áður krafðist heils teymis af forriturum, teiknurum og tónlistarfólki getur nú einn hugmyndaríkur einstaklingur gert á skömmum tíma með réttum verkfærum. Á námskeiðinu kynnast þátttakendur þeim aðferðum sem gera kleift að breyta hugmynd í frumgerð af tölvuleik með hjálp gervigreindar.

Farið verður yfir aðferðir til að búa til efni í leiki með gervigreind: myndir af persónum og umhverfi, hvernig lífga má persónur við með hreyfimyndum, hljóð og tónlist og jafnvel stutta sögu eða samtöl. Sýnt verður hvernig lýsa má því sem maður vill fá með orðum og bæta niðurstöðuna skref fyrir skref, og hvernig setja má slíkt efni saman í einfaldan leik.

Námskeiðið byggir á sýnikennslu og dæmum sem ungmenni og forráðamenn fylgjast með saman. Enginn þarf að kunna að forrita fyrirfram. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning og fái í hendur þau verkfæri sem þarf til að hefja gerð eigin tölvuleikja. Að námskeiði loknu fá þátttakendur glærur og leiðbeiningar svo þeir geti haldið áfram heima og byrjað á sínum eigin leik.

Námskeiðaröðin Laugardagsleiðangur er ætluð ungmennum 10 ára og eldri í fylgd forráðamanna. Með hverri skráningu fullorðins fylgir aðgangur fyrir 1 – 2 ungmenni á aldrinum 10 – 17 ára. Athugið að námskeiðið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Vinsamlegast skráið í athugasemdareit við skráningu nöfn og fæðingarár ungmennanna sem koma með.

Staðnám

7. nóvember 2026

2 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

7. nóvember kl. 10:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

14.900 kr.

Snemmskráning: 28. október. Almennt verð: 16.400 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Laugardagsleiðangur - Tölvuleikir með gervigreind

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.