Byrjaðu í golfi - fyrir byrjendur og lengra komin

5 stjörnur
Á námskeiðinu verður farið í alla þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrstu skrefin á golfvellinum.

Í samstarfi við Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf

Nú er hægt að byrja í golfi í Endurmenntun HÍ. Á þessu sívinsæla námskeiði eru grunnatriðin í golfi kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja.

Golf er vinsæl íþrótt meðal allra aldurshópa og það er hægt að byrja að spila golf hvenær sem er á lífsleiðinni. Á námskeiðinu verður farið í alla þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrstu skrefin á golfvellinum.

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra grunnhreyfingar og kynnast siðum og venjum í golfi við þægilegar aðstæður og fyrir þá sem vilja kynna sér sérstaklega SNAG kerfið. Eftir námskeiðið eru þátttakendur betur undirbúnir undir áframhaldandi golfkennslu hjá golfkennurum og t.d. til að taka þátt í skemmtigolfmótum.

„Annað námskeiðið sem ég fer á og fyrsta korterið var ég búin að læra meira en á öllu hinu námskeiðinu sem var einnig fjögur skipti. Takk fyrir mig ég er í skýjunum með þetta."

Staðnám

31. ágúst – 3. september 2026

6 klst – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

31. ágúst kl. 20–22

2. september kl. 20–22

3. september kl. 20–22

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
38.900 kr.

Snemmskráning: 23. ágúst. Almennt verð: 42.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Byrjaðu í golfi - fyrir byrjendur og lengra komin

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.