Ný hugsun - Nýtt líf

4 stjörnur
Á námskeiðinu er fjallað um hversu öflugur hugurinn er til að móta líf okkar og auka hamingju.

Á námskeiðinu er fjallað um hversu öflugur hugurinn er til að móta líf okkar og auka hamingju. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og þjálfun í því hvernig þeir geta stjórnað lífi sínu betur og breytt því sem þeir vilja með notkun hugaraflsins.

Við erum flest hver meðvituð um að hugarfarið skiptir miklu máli þegar kemur að líðan en við gerum okkur ekki grein fyrir því hversu mikið hann hefur að segja um hvað gerist í lífi okkar. Hvernig við getum hreinlega kallað til okkar nýja og betri hluti með því að senda frá okkur réttar hugsanir.

Niðurstöður rannsókna í þessum efnum hafa sýnt að það að virkja hugann betur til þess að breyta lífinu og komast upp úr fari stöðnunar og óhamingju felst í því að ná betri stjórn á hvaða skilaboð við sendum frá okkur. Nú þegar eru víða erlendis haldin námskeið sem hjálpa fólki betur að nýta sér þessa ótakmörkuðu auðlind sem við búum öll yfir, en nýtum okkur fæst í þeim mæli sem við getum.

Á námskeiðinu lærir þú að nýta þennan takmarkalausa hæfileika sem við höfum og getur skipt sköpum í lífinu, ef við lærum réttu tæknina og þjálfum okkur í því sem þarf að gera.

„Kennarinn hafði mjög góð tök á efninu og kom því vel frá sér."

Staðnám

5. október – 12. október 2026

6 klst – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dagskrá

5. október kl. 17–20

12. október kl. 17–20

Kennari
Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
38.900 kr.

Snemmskráning til og með 25. september. Almennt verð er 42.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Ný hugsun - Nýtt líf

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd námskeið

Vefkökustillingar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.